Skoða bók

Hannes : handritið mitt

Magnús Örn Helgason  

Hannes Óli Ágústsson  

10:45 klst.  

2024  

Saga Hannesar Þórs Halldórssonar leikstjóra og fyrrverandi landsliðsmarkvarðar er engri lík. Hannes lék sem atvinnumaður í knattspyrnu víða um lönd og var lykilmaður í sögulegum árangri karlalandsliðsins á EM 2016 og HM 2018. En leið Hannesar á toppinn var þyrnum stráð. Á unglingsárum glímdi Hannes við erfið meiðsli, tæknileg færni hans var takmörkuð og hvað eftir annað hékk ferillinn á bláþræði. En Leiknisstrákurinn í skræpóttu markmannstreyjunni sigraðist á öllu mótlæti og stóð að lokum á stærsta sviði knattspyrnunnar andspænis sjálfum Lionel Messi. Í bókinni fjallar Hannes einnig um störf sín í kvikmyndaiðnaðinum en hann hefur meðal annars leikstýrt bíómyndinni Leynilögga og sjónvarpsþáttaröðinni Iceguys. Hannes Þór - handritið mitt er skemmtileg og fróðleg bók um það hvernig hægt er með seiglu og ódrepandi viljastyrk að ná markmiðum sínum.  

Afreksfólk Endurminningar Hannes Þór Halldórsson, 1984 Knattspyrna Kvikmyndagerðarfólk Landslið Leikstjórar Markverðir Ævisögur Ísland Íþróttamenn