Skoða bók
Gummi : saga Guðmundar Hafsteinssonar frumkvöðuls
06:52 klst.
2024
Hér er sögð stórbrotin saga Guðmundar Hafsteinssonar (Gumma) en hann er líklega sá Íslendingur sem hefur náð lengst á framabraut í tæknigeiranum í Kísildal í Kaliforníu. Viðburðaríkum ferli Gumma er fylgt eftir, allt frá því að hann fékk ungur að aldri áhuga á forritun og þar til hann komst til æðstu metorða hjá tæknirisanum Google. Ferðalagið úr stofunni í Breiðholti á níunda áratugnum og alla leið í fremstu víglínu gervigreindarbyltingarinnar hjá bandarískum tæknirisa er ein áhugaverðasta ævisaga sem komið hefur út hér á landi um nokkurt skeið. Hér má lesa um kynni Gumma af mestu áhrifamönnum greinarinnar, eins og Steve Jobs hjá Apple, Mark Zuckerberg hjá Facebook-Meta og stofnendum Google. Snorri Másson, blaðamaður og nú þingmaður, skrifar hér lipra frásögn þar sem hlustandinn fær innsýn í hvernig tæknifyrirtækin eru uppbyggð og rekin. Ferill Gumma er saga af tækniframförum 21. aldar og slík saga hefur sjaldan átt eins brýnt erindi við samtímann og einmitt nú.
Frumkvöðlar Guðmundur Hafsteinsson 1975- Kísildalurinn Tækni Tölvuverkfræðingar Ævisögur