Skoða bók

Með minnið á heilanum : frásagnir úr fjarlægum bernskuheimi

Þórhildur Ólafsdóttir  

Þórey Sigþórsdóttir  

04:20 klst.  

2025  

Hvernig sér lítil sveitastelpa á árunum kringum 1960 veröldina sína? Í þessari bók leyfir Þórhildur Ólafsdóttir, rithöfundur og þýðandi, barninu sem hún var að fá orðið, segja frá fólki, dýrum, húsum og náttúru í fjarlægum heimi. Barnið horfir á, drekkur í sig myndir, atburði, orð og sögur sem móta það fyrir lífstíð. Skynjunin birtist milliliðalaust og frásagnirnar ná að fanga almennan veruleika sem nær langt út fyrir stað og stund frásagnanna. Með minnið á heilanum er óvenjuleg minningabók. Minnið er hverfult og tilviljanakennt enda leitast höfundur alls ekki við að finna eitthvað sem kalla mætti sannleika. Með hjálp barnsins er frekar reynt að uppgötva og nálgast, draga litlu stelpuna og nærumhverfi hennar upp úr hjúpi gleymskunnar sem endanlega mun hylja allt.  

Endurminningar Skáldsögur Skáldævisögur Æviminningar Þórhildur Ólafsdóttir 1953-