Skoða bók

Flúraða konan : Niviarsiaq kakiornilik

Nordbo, Mads Peter  

Ingunn Snædal  

Hinrik Ólafsson  

10:28 klst.  

2018  

Þegar lík af fornum víkingi finnst í ísnum í Grænlandsjökli er útlit fyrir að hið litla samfélag í Nuuk muni verða miðpunktur heimssögulegra tíðinda. Danski blaðamaðurinn Matthew Cave er sendur á vettvang en málið tekur óvænta stefnu þegar líkamsleifar víkingsins hverfa og lögreglumaður sem vaktaði þær finnst myrtur. Þegar Matthew fer að grafast fyrir um málið kemst hann á snoðir um fjögur óupplýst morð frá árinu 1973 sem framin voru með samskonar hætti. Ekki er öllum vel við eftirgrennslan hans og sú eina sem hann getur treyst er ung kona sem var að losna úr fangelsi fyrir að hafa myrt föður sinn. Flúraða konan er áhrifamikil og grípandi saga um illsku og fjölskylduharmleik. Útgefendur um allan heim bitust um réttinn áður en bókin kom út en hún hefur fengið frábæra dóma. Mads Peder Nordbo hefur búið á Grænlandi í fjölda ára og gjörþekkir grænlenskt samfélag.  

Danskar bókmenntir Glæpasögur Grænland Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Þýðingar úr dönsku