Skoða bók
Eyja
4
11:22 klst.
2025
Jeppe Kørner er í leyfi á eyjunni Borgundarhólmi og Anette Werner er því einni falið að stýra rannsókninni á sundurlimuðu líki sem fannst í tösku grafinni í jörð á leikvelli í miðbænum. Rithöfundurinn Esther de Laurenti kemur við sögu og brátt kemur Jeppe líka til skjalanna og við tekur rannsókn á ískyggilegu leyndarmáli sem á rætur í fortíðinni og tengist Borgundarhólmi. Eyja er fjórða bókin sem kemur út á íslensku í Kaupmannahafnarseríunni eftir Katrine Engberg um lögregluforingjana Jeppe Kørner og Anette Werner. Bækurnar hafa slegið í gegn og vermt efstu sæti vinsældalista víða um heim. Tilnefnd til Mofibo-verðlaunanna sem glæpasaga ársins í Danmörku.
Danskar bókmenntir Glæpasögur Kørner, Jeppe (sögupersóna) Lögreglurannsóknir Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Werner, Anette (sögupersóna) Þýðingar úr dönsku