Skoða bók

Við höfum alltaf átt heima í kastalanum

Jackson, Shirley  

Gunnhildur Jónatansdóttir  

Birta Ösp Rósinberg Harðardóttir  

06:30 klst.  

2025  

Í þessari mögnuðu skáldsögu kynnumst við systrunum Merricat og Constance sem hefur verið útskúfað úr samfélagi þorpsbúa vegna skelfilegra atburða í fortíð þeirra. Þær lifa fábrotnu en hamingjuríku lífi á ættaróðali sínu í útjaðri þorpsins þar til tilveru þeira er ógnað af utanaðkomandi öflum. Hrollvekjandi saga um múgæsingu, einangrun, ást og mannfyrirlitningu. Shirley Jackson (1916-1965) hefur stundum verið kölluð fánaberi gotneskra bókmennta. Áhrifa hennar gætir víða í verkum þekktra höfunda, svo sem Stephens King og Neils Gaiman. Ein bók hefur komið út eftir hana á íslensku, Líf á meðal villimanna í þýðingu Gyrðis Elíassonar. Við höfum alltaf átt heima í kastalanum er af mörgum talin hennar besta bók.  

Bandarískar bókmenntir Hrollvekjur (sögur) Skáldsögur Þýðingar úr ensku