Skoða bók
Bókin um fyrirgefninguna : leiðin til að lækna sjálfan sig og heiminn
06:40 klst.
2019
Sögurnar sem sagðar eru hér af fyrirgefningunni eru hetjusögur venjulegs fólks, ekki fræðilegar skýringar á fyrirgefningunni. Þær sýna ótrúlegan þroska og hugrekki. Og trú. Fólks sem orðið hefur fyrir skelfilegu óréttlæti og verið beitt ofbeldi. Það fyrirgefur. Lesandi spyr sjálfan sig iðulega: Gæti ég gert þetta? Svarið er oft varla en þó. Jú. Tæpast. Eða þvert nei. "Hvað er að fyrirgefa? Er alltaf hægt að fyrirgefa? Öllum? Alltaf? Og hvernig? Vegna þess að við erum menn þá fara margvísleg samskipti illa, ýmist særum við annað fólk eða erum særð nema hvort tveggja sé! Það er í eðli okkar og er óhjákvæmilegt. Fyrirgefningin færir þessi samskipti í lag á ný. Þannig lagfærum við rifurnar í mannlífsvefnum. Þannig komum við í veg fyrir að samfélag og samskipti leysist upp." Desmond Tutu erkibiskup hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1984 fyrir baráttu sína gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku. Árið 1994 var hann skipaður formaður Sannleiks- og sáttanefndarinnar í S-Afríku Þar sem hann ruddi brautina fyrir önnur lönd til að horfa fram á veginn eftir upplausn og eyðileggingu. Hann skrifar þessa bók ásamt dóttur sinni og prestinum Mpho Tutu.
Fyrirgefning Hagnýt sálfræði Kristin siðfræði Siðfræði Sjálfsrækt Tilfinningar Þýðingar úr ensku