Uppfært app fyrir iPhone - Vinsamlegast uppfæra

Við erum komin með nýja útgáfu af appinu okkar fyrir iPhone sem virkar vel.
Vinsamlegast smella hér og uppfærið appið.

Skoða bók

Dúkkuverksmiðjan

Júlía Margrét Einarsdóttir  

Júlía Margrét Einarsdóttir  

06:00 klst.  

2025  

Stína og Grímur láta drauminn rætast og opna veitingastað í afskekktum firði fyrir vestan. Brátt er Dúkkuverksmiðjan orðin hjarta Salteyrar og það eina sem skyggir á gleðina er barnleysið. Þegar dóttirin langþráða loksins birtist reynir hún mjög á ástríka foreldrana, enda er stúlkan eins og lítill hvirfilbylur; eirðarlaus, uppátækjasöm og þjökuð af martröðum. Milla litla og Reynir besti vinur hennar vaxa úr grasi í öruggum faðmi þorpsins umkringd himinháum fjöllum og óblíðum náttúruöflum. Samband þeirra er afar náið en þegar þau stálpast kemst ástin í spilið og flækir málin svo um munar. En úr fjarlægð fylgist dularfullur maður með Millu og lúrir á leyndarmáli sem mun umturna öllu. Júlía Margrét Einarsdóttir er sögumaður af guðs náð, í senn smellin og einstaklega næm á mannfólkið í öllum sínum breyskleika. Í þessari þriðju skáldsögu sinni færir hún okkur heilt þorp - segir sögu íbúanna á hlýlegan og nostalgískan hátt án þess að gefa nokkurn afslátt af stóru spurningunum um ástina, lífið og dauðann.  

Skáldsögur Íslenskar bókmenntir