Skoða bók
Morð og messufall
Arndís Þórarinsdóttir Hulda Sigrún Bjarnadóttir
08:18 klst.
2025
Sif hefur einföld markmið í lífinu. Hún vill bara halda foreldrum sínum á - eða að minnsta kosti nálægt - mottunni og hreppa prestsembætti svo hún geti tryggt syni sínum örugga framtíð. Fyrsta atvinnuviðtalið eftir útskriftina úr guðfræðinni endar þó með ósköpum þegar þau séra Reynir ganga fram á lík í altariströppunum. Í óðagotinu sem fylgir er Sif ráðin í tímabundið starf kirkjuvarðar og einsetur sér að sanna sig svo hún hljóti prestsvígslu í kjölfarið. En organistinn er hættur, bókhaldið í óreiðu og í ofan á lag virðist piltur úr ungmennastarfinu vera horfinn sporlaust. Hvað í ósköpunum var hinn látni, Kormákur Austfjörð, sérlegur aðstoðarmaður Reynis, að bralla á elliheimili hverfisins? Og hversu mörg boðorð er eiginlega hægt að brjóta í einni og sömu kirkjunni? Morð og messufall er sprenghlægileg glæpasaga, full af eftirminnilegum persónum og óviðjafnanlegum uppákomum. Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir hafa getið sér gott orð sem barnabókahöfundar og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín innanlands og utan en þetta er fyrsta bók þeirra fyrir fullorðna.