Skoða bók
Í skjóli nætur
2
08:59 klst.
2022
Einhvers staðar í óbyggðunum eru Ellie og vinir hennar í felum. Það hefur verið ráðist inn í landið þeirra. Fjölskyldur þeirra og vinir eru fangar. Veröld þeirra hefur umturnast á einni nóttu. Og nú hefur vinahópurinn tvístrast. Tvö þeirra hafa lent í höndum óvinanna. Nokkur úr hópnum fara í könnunarleiðangur og finna annan uppreisnarflokk sem er að berjast við óvinina ? en hver eru þau og er þeim treystandi? Í skjóli nætur er æsispennandi framhald sögunnar Á morgun, þegar stríðið hófst, um hóp unglinga sem er fyrirvaralaust staddur á miðju stríðssvæði. Þau munu aldrei gefast upp. Ekki átakalaust. En stundum er hugrekkið of dýru verði keypt.
Fantasíur Skáldsögur Ungmennabækur Ástralskar bókmenntir Þýðingar úr ensku