Skoða bók

Silfurgengið

Brynhildur Þórarinsdóttir  

Dagmar Íris Gylfadóttir  

06:36 klst.  

2025  

Sirrýlei ætlar að halda gott 15 ára afmælispartí fyrir vini sína. Foreldrar hennar verða í útlöndum og planið er alveg skothelt. En smám saman flækjast málin, meira að segja amma hennar klikkar með því að gefa henni eldgamla nælu í staðinn fyrir flottu úlpuna sem hún óskaði sér. Sirrýlei á erfitt með að halda kúlinu gagnvart vinum sínum þegar saga nælunnar og fyrri eigenda hennar, Silfurgengisins, nær tökum á henni. Bestu vinkonur hennar botna ekkert í henni og ekki batnar það þegar Sirrýlei velur nördalegasta áfangann í skólanum og lendir þar í hópi með stórundarlegum krökkum, meðal annars nýja stráknum með skrýtna nafnið og skyrhárið! Silfurgengið er grípandi saga um vináttu og óvænt örlög. Brynhildur Þórarinsdóttir er margverðlaunaður höfundur barna- og unglingabóka og hlaut meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir endursagnir sínar á Íslendingasögunum Njálu, Eglu og Laxdælu.  

Kynslóðasögur Skáldsögur Stelpur Ungmennabækur Ungmenni Íslenskar bókmenntir