Skoða bók

Draumar : unglingabók

Bergþór Ólafsson  

Eggert A. Kaaber  

02:47 klst.  

2025  

Egill er 12 ára gamall strákur sem flytur um sumarið til Reykjavíkur vestan af fjörðum og byrjar í Bjartaskóla um haustið. Egill er að læra á gítar en aðrir strákar í bekknum æfa fótbolta. Draumur Egils er að verða tónlistarmaður. Jökli og félögum í strákaklíkunni finnst hann svolítið "sveitó". Kolbrún, Didda og hinar stelpurnar í bekknum geta ekki beðið eftir því að klára Bjartaskóla og fara á unglingastig. Freysteinn og Bára eru kennarar í Bjartaskóla. Freysteinn er strangur með mikinn aga en Bára reynir að fara mjúku leiðina. Þau eru bæði komin vel á seinni hluta starfsævinnar. Þau eiga eftir að kynnast betur en hver er fortíð þeirra? Raggi róni þvælist um hverfið og veldur skelfingu meðal krakkanna, sérstaklega á bæjarhátíðinni. Ætli Raggi eigi sér einhverja drauma eða er honum sama um allt? Hvernig gekk í skólabúðunum á Reykjum? Hvað gera strákarnir við Freystein? Fremja þeir morð? Draumar er fyrsta bók Bergþórs Ólafssonar. Bergþór hefur starfað sem grunnskólakennari í 20 ár. Draumar er bók sem er samin með það í huga að nemendur leggi stund á námið en stefni jafnframt að þeim draumum sem þeir þrá. Einnig er markmið að efla félagsþroska nemenda og draga það jákvæða fram í lífinu. Söguþráðurinn er dreginn fram á spaugilegan hátt og á erindi til unglinga sem fullorðinna.  

Barna- og unglingabækur Barnabókmenntir (skáldverk) Skáldsögur Unglingabækur Ungmenni Íslenskar barna- og unglingabækur Íslenskar bókmenntir