Skoða bók

Dreim : dýr móðurinnar

Fanney Hrund Hilmarsdóttir  

Sunna Valgerðardóttir  

Dreim  

11:13 klst.  

2025  

Draupnir, máttugasta vera Dreim, er fallinn. Myrkrið vex beggja vegna skilanna og dreimfarar úr Fósturdal hafa örlög heimanna í höndum sér. Skömmu eftir komuna til Ngala, berst spádómur Draupnis. Von er á hinum mikla mætti og von ljóssins: Mtoto Ngala. Áður en að því kemur þurfa dreimfarar að halda til fjalla, glíma við gárunga, gljúfur og glóandi jökla, ógnarmátt landsins og iðandi lífríkið - en þó fyrst og fremst dýrið sem býr innra með þeim sjálfum. Á meðan heift Alex hrekur hópinn í ógöngur er Daríus hvergi óhultur fyrir myrkrinu sem teygir sig á milli heima og þegar Bella slítur sig úr fjötrum reynist ást hennar á Staurian ógn við líf þeirra beggja. Þá er ónefnt litla dýrið sem enginn gefur gætur í allri óreiðunni. Það sem síst skyldi gleymast.  

Fantasíur Fantasíur (bókmenntir) Skáldsögur Ungmennabækur Ungmennabókmenntir (skáldverk) Ungmenni Íslenskar bókmenntir