Skoða bók

Tækni og framfarir

Ívar Örn Reynisson   Sigrún Elíasdóttir  

Hafþór Ragnarsson  

1  

Sögugáttin  

01:03 klst.  

2014  

Tækni og framfarir er þemahefti í sögu fyrir mið- og unglingastig og er í bókaflokknum Sögugáttin. Bókin segir sögu tækniþróunar á Vesturlöndum á 20. öld. Stórfelldar framfarir urðu á stuttum tíma til dæmis í samgöngum. Ýmsar tækninýjungar tengjast styrjöldum aldarinnar og fjallað er um upphaf geimferða og langvarandi kalt stríð. Gerviefni eru fundin upp og rafmagn leitt inn á hvert heimili. Læknisfræðin tekur stórstígum framförum og mikilvæg heimilistæki líta dagsins ljós. Í lokin er sagt frá byltingu í samskiptum og nýrri tækniþróun sem enginn veit hvernig endar. Í bókinni eru fjölbreytt verkefni sem hugsuð eru sem æfing í frekari heimildavinnu.  

20. öld Kennslubækur Miðstig grunnskóla Saga Tækni Tækninýjungar Unglingastig grunnskóla