Skoða bók

Lettinn Pietr

Simenon, Georges  

Guðmundur J. Guðmundsson  

Maigret lögregluforingi  

04:32 klst.  

2026  

Lögregluforinginn Maigret fær tilkynningu frá Interpol um að alræmdur svikari, sem gengur undir nafninu Lettinn Pietr, sé á leið til Frakklands. Maigret fær ítarlega lýsingu á útliti hans og ætlar að handtaka hann á lestarstöð við París. En þegar þangað kemur reynast æði margir samsvara lýsingunni á Lettanum Pietr. Hver er hann í raun og veru? Og hvað vakir fyrir honum í París? Í þessari fyrstu bók Simenons í bókaflokknum fræga um Maigret reynir sannarlega á innsæi franska lögregluforingjans við að komast að sannleikanum um hinn dularfulla Lettann Pietr. Belgíski rithöfundurinn Georges Simenon (1903-1989) hóf rithöfundaferil sinn í París um tvítugt. Hann sló í gegn með bókum sínum um Maigret en alls skrifaði hann rúmlega 400 skáldsögur.  

Belgískar bókmenntir Maigret (sögupersóna) Sakamálasögur Skáldsögur Þýðingar úr frönsku