Skoða bók

Ferðamál á Íslandi

Edward Hákon Huijbens   Gunnar Þór Jóhannesson   Magnús Haukur Ásgeirsson  

Talgervill  

2  

14:54 klst.  

2024  

Ferðamál á Íslandi kom fyrst út árið 2013 og var þá fyrsta rit sinnar tegundar á íslensku. Þetta er endurskoðuð og uppfærð útgáfa og sem fyrr er tekið á ferðamálum í víðu samhengi. Bókinni er skipt í þrjá meginhluta sem hver um sig endurspeglar einstök áhersluatriði sjálfbærrar þróunar; efnahag, umhverfi og samfélag. Í I. hluta er farið yfir ferðamál í tengslum við hagkerfi, skipulag og stjórnsýslu. Í II. hlutanum er ferðamálum og málefnum umhverfisins gerð skil og í III. hluta er fjallað um ferðamálin, samfélag og menningu og hvernig íslensk samtímamenning tvinnast saman við ferðamál. Ferðamál á Íslandi er ætluð þeim sem hyggja á nám í ferðamálafræði á háskólastigi og eru að mennta sig í ólíkum greinum ferðaþjónustu á ýmsum skólastigum en jafnframt þeim sem hafa atvinnu af ferðaþjónustu og vilja sjá störf sín og daglegar athafnir í stærra samhengi.  

Ferðamálafræði Ferðaþjónusta Hagkerfi Kennslubækur Markaðssetning Menning Menningartengd ferðaþjónusta Námsbækur Náttúruskoðun Sjálfbærni Stjórnsýsla Umhverfisáhrif Ísland