Skoða bók

Þar sem hafið glitrar

Strömberg, Louise  

Urður Snædal  

Álfrún Helga Örnólfsdóttir  

Skerjagarðsserían  

12:14 klst.  

2026  

Árið 1941 stigmagnast seinni heimsstyrjöldin og Evrópa brennur. Í skerjagarðssælunni í Arkösund er hins vegar allt nánast eins og það á að sér að vera. En ekki fyrir alla. Þegar Margareta, dóttir verksmiðjueiganda, hittir gyðinginn Henry umturnast líf þeirra. Árið 2024 stendur hjúkrunarfræðingurinn Lilly á krossgötum. Eftir að hafa lent í svikum og glímt við veikindi vegna kulnunar ákveður hún að snúa ekki aftur á gamla vinnustaðinn. Í tómarúminu fær hún sér sumarstarf á elliheimilinu Unaðsreit í Arkösund. Vinnan og samstarfs­fólkið valda djúpstæðri breytingu á Lilly og hægt og rólega finnur hún sjálfa sig aftur. Á sama tíma skapast sönn vinátta milli hennar og ­hinnar dularfullu Margaretu sem dvelur á elliheimilinu. For­tíðin ásækir gömlu konuna og Lilly dregst inn í stórbrotið ævin­týri sem teygir sig aftur til stríðsáranna. Þar sem hafið glitrar er sjálfstætt framhald af hinni vinsælu bók Þar sem villtu blómin vaxa eftir Louise Strömberg í Skerjagarðs-seríunni. Grípandi skáldsaga um hvernig djúp vinátta getur kviknað þegar síst skyldi og hvernig ástin getur breytt öllu.  

Ljúflestrarbækur Skáldsögur Sænskar bókmenntir Ástarsögur Þýðingar úr sænsku