Skoða bók
Ástvinamissir
Tinna Gunnlaugsdóttir Guðbjörg Guðmundsdóttir Hinrik Ólafsson
06:35 klst.
2021
Ástvinamissir fjallar um sorg og sorgarviðbrögð fólks vegna andláts náins ættingja eða vinar. Tíu Íslendingar rifja upp sínar dýpstu og sárustu tilfinningar í von um að frásagnir þeirra verði öðrum styrkur í þraut. Tveir prestar, geðlæknir og bókmenntafræðingur fjalla einnig um sorgina innan sinnar fræðigreinar. Greint er frá reynslu sem orð fá vart lýst, örlagaþrungnum atburðum, von og ótta, sársauka, sorg og gleði, söknuði og hetjuskap. Bókinni er ætlað að opna umræðu; vera huggun harmi gegn. Ástvinamissir, sem kom út árið 1988, hefur verið ófáanleg um mjög langt skeið en þúsundir Íslendinga hafa leitað huggunar í bókinni í sínu sorgarferli. Einni sögu hefur verið bætt við í þessari hljóðbókarútgáfu, en það er saga Guðbjargar Guðmundsdóttur, höfundar bókarinnar, en hún missti son sinn eftir útkomu bókarinnar.