Skoða bók

Í djúpinu

Margrét S. Höskuldsdóttir  

Rósa Guðný Þórsdóttir  

09:30 klst.  

2024  

Athafnamaður finnst látinn í heitum potti við heimili sitt í Laugardalnum og fljótlega beinast spjótin að vinum hans og samstarfsfélögum. En rannsóknarlögreglukonan Ragna er eldri en tvævetur í faginu og skarpt og næmt innsæi segir henni að lausnin sé flóknari en svo. Brátt er Ragna komin á slóðir sem liggja aftur til fortíðar og á heimavist vestur á fjörðum. Hvaða leyndarmál búa í djúpinu? Í djúpinu er margslunginn og spennandi vestfjarðakrimmi með dulrænum undirtón.  

Glæpasögur Lögreglurannsóknir Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir