Skoða bók
Stund úlfsins
12:32 klst.
2026
Hárbeitt og spennuþrungin hrollvekja um óbærilegan missi og einsemd - og síðbúna, grimmilega hefnd. Vopnasali er skotinn í kviðinn á götu í Minneapolis; leyniskytta hefur setið fyrir honum. Bob Oz rannsóknarlögreglumaður er í meiri háttar vandræðum í starfi og einkalífi, en hann kann sitt fag og er snöggur að komast á slóð byssumannsins sem virðist vera einn að verki og eiga harma að hefna. Skyttan lætur aftur til skarar skríða og Bob fer að skynja samhengi og sögu; boðskap sem morðinginn vill koma á framfæri. Það sem meira er, sú saga endurómar líf hans sjálfs og þeir hugsa á sömu nótum, hann og sá sem hann er að elta. Bob verður að líta í eigin barm en því dýpra sem hann skyggnist, þeim mun skelfilegra verður það sem hann sér. Jo Nesbø er heimsþekktur fyrir frábærar glæpasögur sínar. Hér rýnir hann í samfélag á heljarþröm, gegnsýrt af ofbeldi og spillingu, og fólkið sem þar hrærist.
Glæpasögur Hrollvekjur Norrænar spennusögur Norskar bókmenntir Skáldsögur Spennusögur Þýðingar úr norsku