Skoða bók

Ferðasaga kúrekans

Adams, Andy  

Ragnar Hauksson  

Hinrik Ólafsson  

11:54 klst.  

2026  

Ferðasaga kúrekans segir frá rekstri þrjú þúsund nautgripa frá Rio Grande í syðsta hluta Texas í Bandaríkjunum allt norður til Montana árið 1882. Ferðin tekur fimm mánuði. Á leiðinni kynnist sögumaður, piltur um tvítugt, langrekstrarlífinu, hættum þess og erfiðleikum - þreytunni á næturvöktum, skelfingunni sem grípur um sig þegar hjörðin tekur skyndilega á rás í næturhúminu, ofbeldinu sem gat brotist út á leiðinni, glímunni við þurrka og fljót - en líka skemmtunum og sögunum fróðlegu sem kúrekarnir segja hver öðrum við varðeldinn á kvöldin. Andy Adams (1859 -1935), bóndasonur frá Indiana, var lengi kúreki og meðal annars rekstrarstjóri. Hann skrifaði skáldsögur, leikrit, smásögur og barnabækur. Ferðabók kúrekans (The Log of a Cowboy) var fyrsta skáldsaga hans. Hún kom út árið 1903 og hefur verið endurprentuð reglulega síðan. Bókin þykir gefa lifandi og sanna mynd af því hvernig kúrekalíf í "villta vestrinu" var í raun og veru, ólíkt þeirri goðsagnakenndu mynd sem dregin hefur verið upp í fjölmörgum Hollywood-kvikmyndum.  

Bandarískar bókmenntir Kúrekar Skáldsögur Þýðingar úr ensku