Skoða bók
Lygarinn
10:56 klst.
2026
Hverjum getur maður treyst? Sumarið er á næsta leiti og Stokkhólmur fegurri en nokkru sinni fyrr. Snemma morguns finnst unglingsdrengur látinn í skóglendi í úthverfinu Bromma. Líkið er illa útleikið og drengurinn virðist hafa verið rændur. Spennan magnast í annars friðsælu hverfinu og grunur beinist að öðrum drengjum í nærliggjandi hverfi. Emma Sköld og félagar hennar í lögreglunni standa frammi fyrir flókinni ráðgátu þar sem fordómar setja strik í reikninginn. Í kapphlaupi við tímann reyna þau að leysa málið áður en morðinginn lætur aftur til skarar skríða. Lygarinn er sjálfstætt framhald af bókunum um Emmu Sköld. Líkt og í fyrri verkum tekst höfundurinn á við þau málefni samtímans sem eru ofarlega á baugi hverju sinni. Bókaflokkurinn hefur verið þýddur á 17 tungumál og selst í milljónum eintaka um allan heim.
Emma Sköld (skálduð persóna) Glæpasögur Lögreglukonur Lögreglurannsóknir Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Sænskar bókmenntir Þýðingar úr sænsku