Viðgerð í gangi

Unnið er að viðgerð á appinu.

Bendum lánþegum á vefspilarann hér


Skoða bók

Rennt í hylinn : áfram streymir Laxá og - lífið

Björn G. Jónsson  

Karl Emil Gunnarsson  

07:16 klst.  

1996  

Bkörn á Laxamýri var þjóðkunnur maður. Hann fæddist og ólst upp á bökkum hinnar frægu laxveiðiár, Laxár í Aðaldal, þrautþekkti hana og kenjar laxanna sem upp eftir henni stökkva. Í þessari bók er hann á einskonar eintali við ána sína sem hefur nánast verið allt hans líf. Hann rennir færi sínu jafnt í hyl árinnar og minninganna. Björn hefur kynnst fjöldanum öllum af hressum og góðglöðum laxveiðimönnum og hefur á hraðbergi ýsmar skondnar og skemmtilegar veiðisögur af óvæntum uppákomum sem kitla hláturtaugarnar. En þar sem hann stendur á árbakkanum og talar í strauminn lætur honum hvað best að íhuga rök mannlífsins og allrar tilverunnar á heimspekilegum nótum. Hann hefur upplifað margt, átt á stundum í erfiðri baráttu, orðið fyrir hrikalegri ásókn illra afla og farið sálförum. Hann hefur horft i aðra heima, velkist því ekki í vafa um framhald á lífi eftir dauðann og hræðist því ekki kallið. Umfram allt er hann náttúruunnandi af Guðs náð og skynjar af innsæi hið fína jafnvægi milli manns og lands. Hann barðist fyrir ánni sinni og vakti menn til skilnings um að bjarga henni frá glötun. Einlæg frásögn af viðburðaríkri og skemmtilegri ævi.  

Björn G. Jónsson 1933-1997 Bændur Laxveiðar Sjálfsævisögur Suður-Þingeyjarsýsla Ævisögur