Skoða bók

Helvítis fantur ertu! : Gunnar Ingi Gunnarsson læknir leysir frá skjóðunni

Guðjón Ingi Eiríksson  

Guðmundur Ólafsson  

05:23 klst.  

2026  

Ævisaga Gunnars Inga Gunnarssonar sem lungann úr starfsævi sinni var yfirlæknir á Heilsugæslunni Árbæ. Hann kom reyndar víðar við, svo sem á Slysavarðstofunni og Læknavaktinni, auk þess að grípa í afleysingar á fjölmörgum stöðum á landsbyggðinni. Þá lét hann jafnframt til sín taka á öðrum vígstöðvum og gekk það ekki alltaf þegjandi og hljóðalaust fyrir sig, eins og dæmin sanna. Gunnar Ingi hefur næmt auga fyrir því skoplega í tilverunni og ber bókin þess glöggt merki. Fjölmargar skemmtilegar sögur af ótrúlegum uppákomum er hér að finna en einnig dapurlegar. Hann hefur séð dauðann í sinni óvenjulegustu mynd og stóð um tíma sjálfur, af eigin völdum, á bjargbrún tilverunnar. Stuttu síðar gerði ólánsmaður einn úr undirheimunum "heiðarlega" tilraun til þess að koma honum fyrir kattarnef - og ekki bara einu sinni.  

Gunnar Ingi Gunnarsson 1946 Læknar Ævisögur