Skoða bók

Kvenskörungar á Grand Hôtel

Kvarnström-Jones, Ruth  

Valgerður Bjarnadóttir  

Sigríður Eyrún Friðriksdóttir  

Kvenskörungar á Grand Hôtel  

1 

15:15 klst.  

2026  

Á Grand Hôtel í hjarta Stokkhólms fléttast saman líf, draumar og örlög kvenna sem neita að láta sér segjast þegar kemur að því að taka pláss. 1901. Hótelið stendur á tímamótum - og það gera konurnar sem þar starfa líka. Þær eiga allar sína ólíku fortíð en eiga það sameiginlegt að vilja skapa sér framtíð í heimi sem er ekki endilega tilbúinn að gefa þeim tækifæri. Hin unga Ottilia fær starf á hótelinu og skilur fjölskyldu sína eftir í sveitinni full vonar um nýtt líf. En á bak við glæsileikann og lúxusinn reynist grimmur veruleiki: hótelið er gjaldþrota. Til að snúa stöðunni við er Wilhelmina Skogh skipuð framkvæmdastjóri. Þegar karlarnir á hótelinu gera uppreisn gegn nýja yfirmanninum bregður Wilhelmina á það ráð að velja saman hóp kvenna til að halda hótelinu opnu. Saman takast þær á við ástir, svik og samfélagslegar skorður en þegar leyndarmál fortíðarinnar koma upp á yfirborðið reynir á traustið og hverju þær eru tilbúnar að fórna. Kvenskörungar á Grand Hôtel er fyrsta bókin í grípandi og rómantískum bókaflokki Ruth Kvarnström-Jones sem hefur farið sigurför um öll Norðurlönd og víða í Evrópu.  

Ljúflestrarbækur Skáldsögur Sænskar bókmenntir Sögulegar skáldsögur Ástarsögur Þýðingar úr sænsku