Skoða bók

Aumingi, mella, syndari og heilagur andi

Lilja Ósk Snorradóttir  

Atlas Hrói Hafdísarson   Dagmar Íris Gylfadóttir   Rósa Guðný Þórsdóttir  

04:29 klst.  

2026  

Næstversti dagur í lífi Sölku Álfheiðar var viku fyrir sjö ára afmælið hennar, það var dagurinn sem Guð hætti að tala við hana. Versti dagurinn var dagurinn sem mamma hennar dó. Til að gera veröldina rökrétta aftur býr Salka til lista. Einn þeirra er Guðslistinn, þar sem hún telur til allar ástæðurnar sem gætu búið að baki því að Guð yfirgaf hana. Var hún syndari? Aumingi? Hún á enn eftir að finna út hvað mella er, en samkvæmt samtölum fullorðna fólksins gætu öll þessi atriði orðið til þess að Guð hætti að tala við mann. Sagan er áhrifarík og segir frá lífi í skugga geðsjúkdóma og ráðaleysi samfélags sem grípur ekki í taumana fyrr en það er um seinan. Bókin er fyrsta skáldsaga Lilju Óskar Snorradóttur sem vakti verðskuldaða athygli fyrir sjálfsævisögulega bók sína, Heimsins besti dagur í helvíti.  

Geðsjúkdómar Skáldsögur Sorg Sálræn áföll Íslenskar bókmenntir