Skoða bók

Húsið : hlýskeið

Hjálmar Sveinsson  

Hinrik Ólafsson  

07:08 klst.  

2026  

Á mótum Baldursgötu og Óðinsgötu stendur lágreist, ílangt hús sem líkist helst bragga. Þakskegg og gluggar eru nánast sokkin í klæðninguna, svo oft hefur nýju lagi verið bætt við. En nú stendur til að færa ytra byrðið í upprunalegt form og byggja heila hæð ofan á húsið. Eigandinn er vakinn og sofinn yfir framkvæmdunum en fer einnig að grúska í sögu hússins og óhugnanlegum atburðum sem þar áttu sér stað rúmum fimmtíu árum áður. Húsið - hlýskeið er margræð skáldævisaga um tímann, mannleg tengsl og þörfina fyrir öruggt skjól, hvort sem það er á heimilinu, í borginni eða meðal samferðafólks  

Skáldsögur Skáldævisögur Íslenskar bókmenntir