Skoða bók
Kistan og fleiri sögur
Hannes Óli Ágústsson Atlas Hrói Hafdísarson Hinrik Ólafsson
03:23 klst.
2026
Kistan og fleiri sögur hefur að geyma safn smásagna eftir Ragnar Jónasson og kemur út í tilefni af stórafmæli hans. Sögurnar átján hafa orðið til á löngum tíma og skrifaðar af ýmsum tilefnum. Allar hafa þær birst erlendis og um helmingur á íslensku í blöðum og tímaritum. Tvær af sögunum skrifaði Ragnar í samstarfi við aðra, Yrsu Sigurðardóttur og Víking Heiðar Ólafsson. Titilsagan Kistan var tilnefnd til Gullrýtingsins sem besta glæpasmásaga ársins 2026 í Bretlandi. Sögurnar draga vel fram helstu styrkleika Ragnars sem rithöfundar og ráðgátumeistarinn fer á kostum í knöppum sögum með óvæntum endalokum.