Skoða bók
Hún er hér
03:43 klst.
2026
Hún er hér er önnur bókin um miðilinn Rósu en hæfileikar hennar leiða hana oft að myrkri sem hún getur hvorki lokað á né snúið baki við. Að þessu sinni er hún er fengin til að hjálpa ungum dreng sem verður fyrir óhugnanlegri ásókn sem engin augljós skýring virðist vera á. Slóðin liggur að sveitabæ þar sem dökk fjölskyldusaga tekur smám saman á sig nýja mynd. Í leit sinni að svörum opnar Rósa á myrk leyndarmál fortíðarinnar sem áttu að liggja grafin og gleymd. Á sama tíma fylgir henni nærvera sem vill ekki yfirgefa hana og hún reynir að átta sig á því hver, eða hvað, er hér.