Skoða bók
Ævintýri Freyju og Frikka: Leynifélag í lífsháska
Dagmar Íris Gylfadóttir Hafþór Ragnarsson
2
02:21 klst.
2026
Freyja og Frikki eru spennt fyrir hátíðum sumarsins á Íslandi með vinum sínum í Leynifélaginu Púkablístrunni. Þau eiga líka von á góðum gestum alla leið frá Alsír en ferðafélagar þeirra frá því á Galapagos, Chiraz og Omar, eru á leið í heimsókn með óvæntar gleðifréttir í farteskinu. Það stefnir því í frábært sumar. Það sem tvíburarnir vita þó ekki er að skuggalegur einstaklingur bruggar launráð og setur að lokum fjölskylduna og vini þeirra í stórkostlega lífshættu. Lögreglunni gengur ekkert að kljást við varginn en getur Leynifélagið Púkablístran hjálpað? Leikurinn berst frá Hafnarfirði til Reykjavíkur með viðkomu í höfuðborg Alsír, Algeirsborg. Vargurinn skuggalegi er skrefinu á undan og virðist vera að vinna slaginn. Klukkan tifar, tíminn er að renna út og spennan verður óbærileg.
Barna- og unglingabækur Barnabókmenntir (skáldverk) Skáldsögur Íslenskar barna- og unglingabækur Íslenskar bókmenntir